Eldri borgari á Íslandi blekktur – svikari fékk aðgang að heimili og millifærði peninga

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar alvarlegt fjársvikamál þar sem íslenskur karlmaður fór á heimili eldri borgara, sagðist vera starfsmaður Microsoft og fékk aðgang að tölvu heimilisfólksins. Þar millifærði hann umtalsverða fjármuni af bankareikningum.

Þetta er ný og hættuleg þróun frá hefðbundnum „Microsoft-svindlum“, þar sem svikarar hingað til hafa aðeins hringt. Nú eru menn sendir inn á heimili fólks – hér á Íslandi.

Auglýsing

Guðjón Rúnar Sveinsson, rannsóknarlögreglumaður hjá miðlægri rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að málið hafi komið upp í gær. Þá hafi maður, sem var gestkomandi á heimili eldri borgaranna, gripið svikahrappinn glóðvolgan. Brotaþolar sjálfir hafi verið með öllu grunlausir á meðan maðurinn komst yfir fjármuni þeirra.

Lögreglan ítrekar að starfsmenn Microsoft:

  • koma aldrei óumbeðnir á heimili,

  • óska ekki eftir aðgangi að tölvum eða bankareikningum,

  • og biðja ekki um persónulegar upplýsingar í gegnum síma.

Ef þú hefur orðið fyrir fjársvikum:

  • hafðu tafarlaust samband við bankann,

  • hringdu í lögreglu í síma 444-1000,

  • safnaðu upplýsingum um atvikið og sendu á cybercrime@lrh.is.

Málið er til rannsóknar og lögreglan hvetur alla sem kunna að hafa orðið fyrir álíka fjársvikum til að hafa samband.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing