Elli Egilsson hannaði jakka á Pharrell

Tónlistarmaðurinn Pharrell klæðist jakka frá hönnuðinum Ella Egilssyni á sviði á tónleikaferðalagi sínu um Evrópu um þessar mundir. Jakkann hannaði Elli undir listamannanafni sínu AC Bananas fyrir merkið Ambush Design. Ambush er afar vinsælt merki hjá poppstjörnum en Lady Gaga, Rihanna, Kid Cudi og Rita Ora hafa komið fram í fötum frá merkinu.

Auglýsing

Uppfært kl. 17.14: Elli lýsir aðdragandum svona í samtali við Nútímann:

Ég var fenginn til þess að hanna nokkur prent fyrir japanska tískumerkið Ambush en ég kynntist eigendum Ambush, Yoon og Verbal, í París þegar ég DJ-aði þar í 50 ára afmæli KEN’s dúkkunnar á tískuvikunni fyrir nokkrum árum síðan. Svo höfðu þau samband við mig í fyrra og vildu fá mig til þess hanna fyrir nýju línuna þeirra sem ber nafnið NU ORDER sem kom svo út í sumar og leyfðu mér að ráða algjörlega sjálfur hvað ég myndi gera. Það endaði í einhverju handmáluðu camoflouge printi með blóðletri!

Elli segir að það sem átti bara að vera ein hönnun á jakka hafi endað í miklu meira: „Þetta endaði í tveimur printum og það voru gerðar töskur, hattar, derhúfur, stuttermabolir og stuttbuxur. Patternið  var meira að segja prentað á veggfóður sem coveraði svo alla búðina þeirra í Japan.“

Pharrell er einn vinælasti tónlistarmaður og upptökustjóri heims um þessar mundir. Hann sló síðast í gegn með stórsmellinum Happy:

Pharrell á tónleikaferðalagi um Evrópu um þessar mundir og kemur næst fram í Frankfurt í Þýskalandi á föstudaginn. Pharrell er mikil tískufyrirmynd og þykir það mikil upphefð fyrir hönnuði þegar hann velur að klæðast frá þeim flíkum.

Elli er kvæntur leikkonunni og verslunareigandanum Maríu Birtu en þau giftu sig í júlí. María Birta er stolt af eiginmanninum miðað við síðustu færslu á Facebook: „Stoltasta eiginkona í heimi!!! Fallegi og talenteraði maðurinn minn hannaði jakka sem að Pharrell er að performa í á nýjasta túrnum sínum.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing