Elliði Vignisson segir vonbrigði að enginn hafi komið Guðbrandi til varnar

Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, hefur sent Guðbrandi Einarssyni, þingmanni Viðreisnar, opinbera samúðarkveðju í færslu á Facebook þar sem hann gagnrýnir að umræðan síðustu daga hafi einkennst af mikilli hörku – og ekki síst þögn þeirra sem Guðbrandur hafi talið standa sér nærri.

Elliði segist hafa verið að lesa bókina Aftenging eftir Árna Helgason þegar hann fylgdist með fréttaflutningi undanfarinna daga. Þar hafi hann rekist á orð sem honum hafi þótt lýsa vel þeirri tvíræðu stöðu sem opinberir fulltrúar búa við.

Auglýsing

Í færslunni vitnar Elliði í orð úr bókinni þar sem fjallað er um það hvernig almenningur geti í senn haft stjórnmálamenn í hávegum og gert til þeirra óraunhæfar kröfur, á sama tíma og þeir séu hæddir og smánaðir í opinberri umræðu.

Segir virðingu eiga að ná til allra

Elliði bendir á að þingmenn séu, eins og allir aðrir, breyskir og mannlegir – og að fólk geti gert mistök fyrr á lífsleiðinni án þess að það skilgreini allt sem síðar verður.

Elliði rifjar einnig upp orð sem hann segir að Vigdís Finnbogadóttir hafi látið falla á sínum tíma, um að „virðing fyrir manninum“ sé undirstaða þess sem við köllum siðmenningu.

Hann segir þá virðingu þurfa að ná til allra – líka þeirra sem gegna opinberum störfum og hafi gert mistök áður á ævinni.

Þögnin veldur mestum vonbrigðum

Það sem veldur Elliða þó mestum vonbrigðum, samkvæmt færslunni, er að hans mati þögnin sem hann segist hafa orðið var við.

„Það sem veldur mér þó mestum vonbrigðum er þögnin. Sú þögn sem kemur frá fólkinu sem Guðbrandur hefur án efa talið vini sína og samherja. Enginn stígur fram, enginn tekur til varna. Engin stígur fram fyrir skjaldarrendur til að hlífa honum einhverju af höggunum og sásaukanum . Kannski af ótta við að fá kusk á hvítflibbann. Kannski af því að það er einfaldara að þegja.“

Óskar Guðbrandi og fjölskyldu hans velferðar

Að lokum sendir Elliði Guðbrandi og fjölskyldu hans einlægar velfarnaðaróskir og segir þau standa frammi fyrir erfiðu verkefni sem allir geti skilið að taki á.

Færslan hefur vakið athygli fyrir hlýjan tón í annars harðri umræðu, þar sem Elliði leggur áherslu á mannúð, samhug og þá grundvallarhugmynd að fólk eigi ekki að standa eitt þegar á móti blæs.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing