Ellý Ármanns: „Pínu sárt þegar maður er rekinn“

Eins og Viðskiptablaðið greindi frá í dag þá er Ellý Ármannsdóttir að hætta hjá 365 miðlum.

Óvíst er hvað Ellý tekur sér fyrir hendur. „Pínu sárt þegar maður er rekinn,“ segir hún aðspurð um málið og kýs að tjá sig ekki meira að svo stöddu. Ellý hefur starfað hjá fjölmiðlarisanum í níu ár og haldið utan um Lífið á Vísi.

Miklar mannabreytingar hafa verið hjá 365 undanfarnar vikur. Sævar Freyr Þráinsson tók við sem forstjóri fyrir skömmu og í kjölfarið var Kristín Þorsteinsdóttir ráðin útgefandi 365. Skömmu síðar yfirgáfu ritstjórarnir Mikael Torfason og Ólafur Stephensen fyrirtækið ásamt fleiri starfsmönnum: Frey Einarssyni, yfirmanni sjónvarps, Stefáni Hilmarssyni fjármálastjóra og Friðriku Benónýsdóttur, menningarritstjóra Fréttablaðsins.

Auglýsing

læk

Instagram