Emma Watson við karlmenn: „Jafnrétti kynjanna er líka ykkar mál“

„Það er kominn tími til að við lítum á kynin sem hluta af sama litrófinu í staðinn fyrir tvær andstæðar fylkingar. Við ættum að hætta að skilgreina okkur eftir því sem við erum ekki og byrja að skilgreina okkur eftir því sem við erum.“

Þetta sagði leikkonan Emma Watson í opnunarræðu á ráðstefnu sem markaði upphaf átaks UN Women sem miðar að því að fá karlmenn til að taka þátt í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna.

Watson hvatti karlmenn til að taka þátt til að frelsa dætur þeirra, systur og mæður undan fordómum. „En líka svo að synir þeirra fái leyfi til að vera viðkvæmir og mennskir — þannig verða þeir heilli útgáfur af sjálfum sér.“

Átakið kallast HeForShe og takmarkið er að virkja milljarð karlmanna og drengja til að taka þátt í að binda endi á kynjamisrétti. „Hvernig getum við haft áhrif í heiminum þegar aðeins helmingur fólks er boðið að taka þátt í samræðunni?“ spurði Watson. „Karlmenn, ég vil nota þetta tækifæri til að bjóða ykkur formlega að taka þátt. Jafnrétti kynjanna er líka ykkar mál.“

Watson sagðist hafa horft upp á samfélagið gera lítið úr hlutverki föður síns sem foreldri:

Ég hef séð unga menn þjást af veikindum, án þess að geta beðið um hjálp af ótta við að lítið sé gert úr þeim. Ég hef séð karlmenn viðkvæma og óörugga gagnvart því sem telst vera karlmennska.

Hún sagði karlmenn ekki upplifa jafnrétti, frekar en konur. „Við viljum ekki tala um að karlmenn séu fastir í steríótýpískum hugmyndum um karlmennsku en þeir eru það samt,“ sagði hún. „Þegar þeir verða frjálsir byrja hlutirnir að gerast fyrir konur. Ef karlmenn þurfa ekki að vera aggressífir, þá þurfa konur ekki að vera undirgefnar. Ef karlmenn þurfa ekki að stjórna, þá þurfa þeir ekki að stýra konum.“

Smelltu hér til að lesa ræðu Emmu Watson.

Auglýsing

læk

Instagram