Endum þessa helgi með því að hlusta á lagið hans Gunnars Nelson

Við erum enn þá að jafna okkur eftir glæsilegan sigur Gunnars Nelson á Bandaríkjamanninum Brandon Thatch á bardagakvöldi UFC í Las Vegas í gærkvöldi.

Lagið Leiðin okkar allra með Hjálmum hljómar ávallt þegar Gunnar gengur inn í salinn og okkur finnst tilvalið að hlusta á það núna til að enda þessa frábæru helgi. Lagið má heyra hér fyrir neðan.

Auglýsing

Að fá að nota þetta lag í keppnum UFC hefur ekki verið sjálfsagt. MMA fréttir greina frá því að Dana White, forseti UFC, hafi í fyrstu verið á móti því að Gunnar myndi nota lagið. Hann vildi meira tempó.

Haraldur Nelson, faðir Gunnars, segir í frétt MMA frétta að það hafi verið vesen að fá að nota lagið þegar Gunnar barðist á UFC-kvöldi í Stokkhólmi.

„Þeir vildu eitthvað lag sem myndi kýla áhorfendur upp. Ég sendi þeim langt bréf þar sem ég útskýrði einfaldlega að þetta væri Gunnar Nelson LAGIÐ og það yrði allt brjálað meðal áhorfenda á Íslandi ef það myndi ekki heyrast,“ segir Haraldur.

Það hefur kannski markað endalokin á þessu veseni þar sem engar athugasemdir hafa komið við lagið núna, heldur bara spurning um hvort Gunnar vilji nota sama lag og áður.

Hér er lagið frábæra.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing