Engin kona í umfjöllun Séð og heyrt um fólk sem meikaði það eftir Morfís

Ekki ein einasta kona var í samantekt Séð og heyrt á fólki sem hefur náð langt eftir að hafa tekið þátt í Morfís í framhaldsskóla.

Leikkonan og grínistinn Saga Garðarsdóttir bendir á þetta á Twitter við góðar undirtektir. Í samantektinni má meðal annars finna Gísla Martein, Björn Braga, Sigmar Guðmundsson og Berg Ebba.

Auglýsing

Magadansmærin og búðarkonan Margrét Maack lagði þá til að Nútíminn myndi benda á fólkið sem Séð og heyrt gleymdi og í kjölfarið tók Twitter til sinna ráða.

https://twitter.com/DNADORI/status/597400023735869440

Það var semsagt ansi stór hópur sem komst ekki að í Séð og heyrt.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing