Dularfullt andlát í Kópavogi: Enginn í haldi

Lögreglu barst tilkynning um meðvitundarlausan mann á ellefta tímanum í gærkvöldi. Lögregla fór strax á vettvang, en þegar þangað var komið reyndist maðurinn, um fertugt, látinn.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu er enn óljóst hvað gerðist eða hvernig atburðarásin var. Rannsókn málsins stendur yfir og hafa skýrslutökur þegar farið fram. Þeim verður haldið áfram í dag.

Auglýsing

Enginn er í haldi vegna málsins og lögregla segir að ekki verði veittar frekari upplýsingar að svo stöddu.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing