Danski mjólkurrisinn Arla segist framleiða skyr á Höfn í Hornafirði í umræðum á Facebook-síðu sinni. Þetta kemur fram á mbl.is. Skyrið er hins vegar framleitt í Þýskalandi en Ísland er áberandi í auglýsingum fyrir skyrið.
Sjá einnig: Kolla Björns og Jói B. auglýsa Arla skyrið
Breskur viðskiptavinur Arla spurði hvort skyrið þeirra sé það sama og fæst á Íslandi. Í svari sínu segir Arla það svo sannarlega vera það sama.
Ég get staðfest að þetta er sama skyrið og þú fannst þegar þú ferðaðist til fallega heimalandsins míns.
Margir Íslendingar svara Arla á Facebook og velta eflaust margir fyrir sér hvað vaki fyrir fyrirtækinu. Arla tengist Íslandi ekki á augljósan hátt en kvartaði undan íslensku fyrirtæki til Einkaleyfastofunnar fyrir tveimur árum.
Nafn og merki fyrirtækisins Árla ehf. fór fyrir brjóstið á Arla sem andmælti skráningu merkisins. Andmælin voru kaldhæðnislega byggð á ruglingshættu við skráð vörumerki Arla.
Árla framleiddi morgunkornið Bygga úr íslensku byggi og gerði tilraunir til að mótmæla kröfum danska risans. Svo fór að Einkaleyfastofa til greina kvartanir Arla og felldi skráningu Árla úr gildi.