Vídeóbloggarinn Ásgeir fékk nóg af slæmri umgengni í Seljavallalaug. Hann tók sig til, keypti hreinlætisvörur og fór hreinsaði til í kringum laugina. Myndband Ásgeirs má sjá hér fyrir neðan.
Vísir fjallaði um óþrifnað í Seljavallalaug á dögunum. Þar kom fram að hópur fólks hafi fundið eldgömul skítug handklæði, notað dömubindi á gólfinu og rusl út í horni. Þá hafa ferðamenn á vefnum Tripadvisor.com fjallað um hve ógeðslegir búningsklefarnir eru.
Ásgeir þreif meðal annars búningsklefana og segir frá því í myndbandinu.
Ég bjóst ekki við að þau sem kæmu til að njóta þess að synda í sundlauginni í þessu fallega umhverfi myndu ganga svona um. Tökum upp skítinn okkar og sjáum til þess að framtíðarkynslóðir geti haldið áfram að heimsækja laugina.
Hann hvetur alla til að ganga betur um við laugina sem er gríðarlega vinsæl náttúruperla.