Ferðamaður reynir að drekka vatn í stormi á Íslandi í skoplegu myndbandi

Skoplegt myndband sem sýnir ferðamanninn Mark Tretter gera misheppnaða tilraun til að drekka vatn í stormi á Íslandi hefur skotið upp kollinum á Facebook-síðu tímaritsins FHM. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Myndbandið ferðast nú á ógnarhraða um internetið en það var fyrst birt á Youube í mars á síðasta ári. Búið er að horfa á það þar meira en 220 þúsund sinnum.

Auglýsing

Í ummælakerfinu bendir nokkrir á að Tretter sé að beita kolrangri aðferð við að drekka vatnið en hann veit það eflaust þar sem tilgangurinn er vafalítið að skemmta áhorfendum.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing