Ferðamaðurinn með „drykkjuvandamálið“: Týndi gleraugunum sínum í storminum

Skoplegt myndband sem sýnir ferðamanninn Mark Tretter gera misheppnaða tilraun til að drekka vatn í stormi á Íslandi vakti mikla athygli á dögunum. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Sjá einnig: Ferðamaður reynir að drekka vatn í stormi á Íslandi í skoplegu myndbandi

Auglýsing

Tretter er í viðtali á vefnum Stuck in Iceland og segir að hugmyndin að myndbandinu hafi komið þegar hann dvaldi á hóteli á Búðum. Stormur skall á og gleraugun hans fuku út í veður og vind.

„Þá mundi ég eftir myndbandi sem ég sá fyrir áratugum síðan af pari borða morgunmat á útsýnispalli á Washington-fjalli í New Hampshie,“ segir hann.

Þjónninn færði þeim ristað brauð sem fauk samstundis. Svo hellti hann safa án þess að dropi lenti í glasinu. Mjög fyndið. Þannig að ég ákvað að gera eitthvað svipað.

Myndband Tretter hefur slegið í gegn og er komið upp í rúmlega 800 þúsund áhorf.

Hann er spenntur fyrir að koma aftur til Íslands en spurður hvort honum hafi mislíkað eitthvað á landinu segir hann mörg hótelherbergi of lítil. „Og bjórinn er of dýr!“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing