Fíkniefnabarónar, hjásvæfur og klúður sem kom þeim í fangelsi

Þeir réðu yfir vopnuðum mönnum, fluttu tonn af eiturlyfjum og lifðu í stöðugri tortryggni. Samt var það ekki alltaf uppljóstrari eða tæknirakning sem felldi þá – heldur samband sem þeir hefðu kannski átt að hugsa sig tvisvar um í.

„El Mencho“ á eftirlýstum lista yfirvalda um árabil – talinn einn valdamesti og hættulegasti kartelleiðtogi Mexíkó áður en hann var felldur.

Auglýsing

Mexíkóski kartelleiðtoginn Nemesio Rubén Oseguera Cervantes, „El Mencho“, var skotinn til bana þegar hermenn fundu felustað hans eftir að hafa fylgst með ferðum konu sem tengdist honum. Maður sem forðaðist síma og GPS-rakningu árum saman féll þegar einhver annar var ekki jafn var um sig.

Þegar egóið fer með mann

Joaquín „El Chapo“ Guzmán hafði sloppið úr fangelsi og falið sig árum saman. En samskipti hans við mexíkóska leikkonu og áhugi á að láta segja sögu sína drógu að sér athygli sem hann þurfti alls ekki á að halda. Yfirvöld fylgdust með ferðalögum tengdra aðila og þrengdu smám saman að honum.

Joaquín „El Chapo“ Guzmán í handjárnum eftir handtöku í Mexíkó – maðurinn sem slapp úr fangelsi tvisvar áður en yfirvöld náðu honum loks aftur.

Hann var að lokum handsamaður og situr nú í fangelsi í Bandaríkjunum ævilangt.

Þráin eftir sviðsljósinu reyndist ekki góð hugmynd.

Afmæliskaka og Instagram

Servando Gómez Martínez, kallaður „La Tuta“, var gripinn eftir að yfirvöld höfðu fylgst með óvenjulegri umferð fólks til og frá húsi í Morelia sem tengdist honum. Þegar kærastan hans mætti þangað með súkkulaðiafmælisköku í tilefni 49 ára afmælis hans kviknaði grunur um að hann væri sjálfur á staðnum.

Lögregla beið rétta augnabliksins og handtók hann án þess að hleypt væri af skoti. Afmælisheimsóknin reyndist dýrkeypt.

Servando Gómez Martínez, kallaður „La Tuta“, var meðal eftirlýstustu manna Mexíkó þar til hann var handtekinn árið 2015 – afmælisdagurinn reyndist örlagaríkur.

Í öðru máli var kosta­rískur fíkniefnaleiðtogi handtekinn í Bretlandi eftir að eiginkona hans birti myndir af lúxusferðalagi þeirra á Instagram. Myndirnar gerðu yfirvöldum einfaldlega auðveldara fyrir.

Sameiginlegi þráðurinn? Þeir treystu engum í bransanum – en greinilega aðeins of mikið heima í stofu.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing