Fjarvera Heru Bjarkar vekur athygli: Veik í Reykjavík

Hera Björk Þórhallsdóttir var ekki með á fyrstu æfingu Maríu Ólafs fyrir Eurovision í Vín í gær.

Á vefnum ESC Buzz, sem fjallar um keppnina, kemur fram að fjarvera hennar hafi vakið mikla athygli og verið á allra vörum enda er hún þekkt á meðal Eurovision-aðdáenda eftir kraftmikinn flutning á laginu Je Ne Sais Quoi árið 2010.

Auglýsing

Á vefnum er staðfest að ferðalag Heru hafi tafist vegna þess að hún er veik heima en búist er við að hún verði mætt á svæðið á morgun þegar önnur æfing Maríu fer fram. Veikindum Heru er lýst sem „smá spítalaveseni“ á vefnum.

Hera kemur fram á stóra sviðinu í Eurovision í fjórða skipti með Maríu. Hún var í bakröddum með Eurobandinu árið 2008 og með Jóhönnu Guðrúnu 2009. Hún var svo flytjandi Íslands árið 2010.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing