vFjölskylda Íslendings leitar nú að Ólafi Austmann Þorbjörnssyni í Sofia í Búlgaríu. Síðast sást til hans síðdegis mánudaginn 18. ágúst og hefur ekkert spurst til hans síðan.
Ingibjörg Austmann, systir hans, setti út beiðni á Facebook þar sem hún biður fólk í eða nærri höfuðborginni um að hafa augun opin:
„Við óskum eftir aðstoð þeirra sem eru í eða þekkja til í Sofia í Búlgaríu. Við leitum af Ólafi Austmann Þorbjörnssyni en ekki hefur sést eða heyrst í honum síðan seinni part mánudags 18. ágúst,“ skrifar hún.
Samkvæmt frásögn fjölskyldunnar var Ólafur síðast staðsettur við OMV bensínstöð í borginni (Mladost 1, bulevard „Doctor G. M. Dimitrov“ 55). Hann er um 184 sentímetrar á hæð, með dökkt hár og grannvaxinn. Hann var klæddur í gallabuxur og svarta skyrtu, en á hvorki síma, skilríki né skó þegar hann sást síðast.
„Hann hefur verið veikur og fengið krampaköst. Því viljum við fjölskyldan vita af honum eða hvort sést hefur til hans,“ segir jafnframt í færslunni.
Lögregluyfirvöld bæði á Íslandi og í Búlgaríu vinna að málinu, en fjölskyldan óskar eftir öllum upplýsingum frá almenningi. Hægt er að hafa samband við Ingibjörgu Austmann á Facebook eða með tölvupósti á ingibjorgaustmann@gmail.com, auk þess sem fólk getur hringt í neyðarlínuna 112.