Á samfélagsmiðlinum Facebook deildi Jóhann Fannar Ólafsson hjartnæmum skilaboðum fyrir hönd Anýjar Gísladóttur og fjölskyldu hennar. Þar kom fram að Aný hafi í október á síðasta ári greinst með lungnakrabbamein á fjórða stigi.
Síðan þá hefur hún gengið í gegnum erfiðar meðferðir og barist af ótrúlegu æðruleysi. Krabbameinið hefur dreift sér í eitla og til heila, og stendur hún nú í geislameðferð á höfði eftir að lyfjameðferðir hættu að virka. Hugsanlegt er að leita þurfi meðferðar erlendis, ef ekki tekst að ná tökum á sjúkdómnum hérlendis.
Vilja létta undir
Í færslunni segir Jóhann Fannar:
„Þrátt fyrir þessa erfiðleika heldur Aný áfram eins og stríðsmaðurinn sem hún er og viljum við styðja við bakið á henni og fjölskyldu hennar í þessari þungu baráttu.“
Aný og eiginmaður hennar, Sævar, eiga saman fimm börn og standa nú frammi fyrir bæði fjárhagslegum og tilfinningalegum áskorunum. „Veikindi og áhyggjur sem fylgja krabbameini eru ansi stór biti fyrir sjö manna fjölskyldu,“ segir í færslunni.

Stofnaður hefur verið styrktarreikningur
Til að styðja við bakið á fjölskyldunni var í færslunni kynntur nýstofnaður bankareikningur þar sem fólk getur lagt fram frjáls framlög. Söfnunin verður afhent fjölskyldunni óskipt þegar henni lýkur.
Reikningsupplýsingar:
Kt.: 300185-8279
Banki: 2200-15-058581
Þakkir og hvatning
Í lok færslunnar þakkar fjölskyldan öllum þeim sem þegar hafa lagt sitt af mörkum og hvetur fólk til að deila póstinum áfram, svo sem flestir fái tækifæri til að styðja Aný í baráttunni.