Ljósmyndarinn Valdimar Thorlacius sendir á laugardaginn frá sér bókina I. Sama dag opnar sýning á myndunum í Þjóðminjasafninu.
Myndirnar eru af af íslenskum einförum og vistarverum þeirra og á þeim er skyggnst inn í líf einfaranna. Fjórar myndir má sjá hér fyrir neðan.
Útgefandinn Kristján B. Jónasson hjá Crymogea segir Valdimar sé snillingur sem hafi sýnt þeim flottasta byrjendaverk sem þau hafi séð.
Hann var ákveðinn í að sýna hvernig fólk sem býr eitt, langt í burtu frá öðrum, eitt á sveitabæjum, lifir lífi sínu, fólkið sem bíómyndir á borð við Hrúta sýnir, hvernig er það í raun og veru?
Valdimar bjó hjá fólkinu og kynntist því en sumir þeirra búa einir vegna þess að þeir geta ekki verið í samfélagi við annað fólk, að sögn Kristjáns.


