Grínhópurinn Mið-Ísland kemur fram í Hofi á Akureyri í kvöld. Allir í hópnum ætla að fljúga norður nema Dóri DNA en vegna flughræðslu ætlar hann að keyra. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Sjá einnig: Mið-Ísland brestur óvænt í söng í Hraðfréttum
Nútíminn greindi á dögunum frá því hvernig flughræðsla Dóra setti hópinn í klípu. Ferð á Neskaupstað stóð tæpt þar sem þeir áttu bókað flug og Dóri reyndi hvað hann gat til að forðast að fara með.
Það gekk þó upp á endanum en Dóri fékk kvíðastillandi lyf og lék á als oddi í fluginu.
Björn Bragi segir í samtali við Fréttablaðið að Dóri leggi fyrstur af stað ásamt Magneu, eiginkonu sinni.
Þetta er svo fyndið með Dóra. Hann kvíðir því auðvitað að fljúga en svo hellist þetta bara einhvern veginn yfir hann.
Hópurinn kemur fram á tveimur sýningum í kvöld, klukkan 20 og 23. Þorsteinn Guðmundsson verður með í för en þetta er í þriðja árið í röð sem hópurinn treður upp í Hofi.
Hér má nálgast miða á sýningar Mið-Íslands á Akureyri.