Halldóra Geirharðsdóttir hlaut rétt í þessu Grímuna fyrir hlutverk sitt í sýningunni Billy Elliot. Halldóra flutti sannkallaða eldræðu þegar hún tók við verðlaununum. Ræðuna má sjá hér fyrir neðan.
„Mér finnst samfélagið okkar vera að halla sér of mikið í þá átt að fólk þarf að eiga meiri og meiri pening í poka til þess að börnin þeirra eigi framtíð,“ sagði Halldóra í upphafi ræðunnar.
„Við verðum að rétta úr okkur og ákveða hvernig samfélag viljum við búa til. Það á aldrei að skipta máli hvað mamma þín og pabbi eiga mikið eða hvaða bakland er á bakvið hvert einasta barn. Sýningin er um þetta, Billy Elliot. Þess vegna er svo auðvelta að leika í henni.“
Fólk stóð upp og klappaði fyrir Halldóru sem táraðist og rak svo endahnútinn á ræðuna við rífandi undirtektir.
„Ókei, elskurnar mínar. Ég notaði gluggann minn í þetta. Fyrir börnin. Og tökum ákvörðun um hvernig samfélag við viljum vera!“
Hér má sjá ræðuna. Við biðjumst afsökunar á gæðunum. Við gátum ekki beðið.
Lækaðu Nútímann á Facebook og þú missir ekki af neinu.