Dana White, forseti UFC-bardagasambandsins, vildi hitta Gunnar Nelson í gær og minnti hann á það á Twitter.
@danawhite im on my way!
— Gunnar Nelson (@GunniNelson) July 13, 2015
MMA fréttir greindu svo frá því morgun að tilefni fundarins var að White vildi gefa Gunnari Harley Davidson-mótorhjól — eða Gunnar vildi öllu heldur rukka White um hjólið sem honum hafði verið lofað.
Dana var búinn að lofa að gefa mér Harley Davidson-hjól. Ég var bara að rukka hann um það. Mjög ánægður með það.
Gunnar er í viðtali á MMA fréttum og talar meðal annars um bardagann á laugardag, næsta bardaga sem fer væntanlega fram í október og næstu verkefni.
„Núna verð ég bara í tæpa viku hérna og í LA. Bara eitthvað að fljóta og slaka á. Svo fer ég bara heim og knúsa litla kallinn,“ segir Gunnar í viðtalinu.
Sjá einnig: Gunnar upp um fjögur sæti á styrkleikalista UFC
Í gær var greint frá því að Conor McGregor, æfingarfélagi og vinur Gunnars, verði þjálfari í sjónvarpsþáttunum Ultimate Fighter sem sýndur er á FOX Sports. Gunnar tekur væntanlega einhvern þátt í því.
„Það getur vel verið að ég skjótist yfir til að vera með honum nokkra tökudaga,“ segir hann í viðtali MMA frétta.