Gylfi Sigurðsson slær í gegn

Íslenska karla­landsliðið í fótbolta vann Tyrkland í kvöld með þremur mörkum gegn engu. Þetta var fyrsti leikurinn í undan­keppni EM 2016. Jón Daði Böðvars­son, Gylfi Þór Sig­urðsson og Kol­beinn Sigþórs­son skoruðu mörk­in.

Frammistaða Gylfa Sigurðssonar vakti heimsathygli og fótboltaunnendur á Twitter hreinlega kepptust við að hrósa honum. Hér má sjá brot af því sem þeir höfðu að segja ásamt marki Gylfa:

Næsti leik­ur Íslands í keppn­inni er gegn Lett­landi á úti­velli þann 10. októ­ber. Ísland mæt­ir svo Hollandi á heima­velli 13. októ­ber.

Auglýsing

læk

Instagram