Fótboltamaður í Hetti rekinn fyrir kynþáttaníð: Kallaði markvörð andstæðinga apa í leik

Georgi Stefanov, leikmaður Hattar í 2. deildinni í fótbolta, hefur verið rekinn frá félaginu eftir að hann veittist að Brenton Muhammad, leikmanni Ægis, með niðrandi ummælum í leik liðanna á laugardag.

Austurfrétt greinir frá því að Stefanov hafi tvisvar í leiknum kallað markvörð Ægis apa.

Auglýsing

Þá kemur fram í frétt Austrfréttar að Muhammad hafi farið til Stefanov, faðmað hann og tekið í höndina á honum eftir leik. Þá tóku leikmenn Hattar utan um Muhammad og báðu Ægismenn afsökunar á framkomu Stefanov.

Í yfirlýsingu frá stjórn Hattar kemur fram að Stefanov viðurkenni brot sín og vilji koma á framfæri afsökunarbeiðni til Brenton Muhammad. Þá biður stjórn Hattar leikmanninn einnig afsökunar.

„Frá því að Georgi Stefanov gekk til liðs við Hött hefur hann staðið sig mjög vel innan vallar sem utan og engan skugga borið á hans framkomu,“ segir í yfirlýsingunni.

Hann er mjög miður sín fyrir framferði sínu gagnvart Brenton. Það verður hins vegar ekki horft framhjá alvarleika brotsins og því hefur stjórn Hattar rekstrarfélags ehf ákveðið að Georgi Stefanov spili ekki fleiri leiki með félaginu.

Stefanov kom til Hattar frá Búlgaríu í lok júlímánaðar og hafði aðeins leikið þrjá leiki fyrir félagið.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing