Hjólabreytti fyrirtækisins Mold Skateboards eru fyrstu hjólabrettin sem eru handsmíðuð hér á landi. Viðurinn er fenginn frá Kanada og í tilkynningu frá Mold kemur fram að mikil vinna hafi farið í brettin.
„Það er búið að taka langan tíma að ná þessu réttu og margar plötur hafa lent í ruslinu,“ segir Haukur Már Einarsson, eigandi og stofnandi Mold Skateboards. Hann smíðar brettin.
Haukur Már hefur fengið til liðs við sig þá Steinar Fjeldsted og Ómar Örn Hauksson úr hljómsveitinni Quarashi en Ómar hannaði grafíkina undir brettunum. Þar er um að ræða fígúrur sem landsmenn þekkja.
Steini hafði samband við mig og bað mig um að gera grafíkina undir brettin. Mér leyst það vel á að ég sló til. Þetta eru íslensk hjólabretti og því tilvalið að hafa eitthvað sem allir kannast við, þó að flestir hafi ekki séð þá í þessum stellingum áður.
Fyrstu brettin eru samstarfsverkefni Mold Skateboards og Albumm.is en Steinar er annar eigandi vefsins. Brettin koma í verslanir í dag og verða fáanleg í helstu hjólabrettaverslunum landsins.