Fréttin um afmælisveisluna og eineltið á Ísafirði „á ekki við nein rök að styðjast“

Foreldrar barna í 10. bekk í Grunnskólanum á Ísafirði segja að umfjöllun DV um einelti í árganginum á laugardag eigi ekki við nein rök að styðjast. Þetta kemur fram í yfirlýsingu á vef grunnskólans.

Uppfært kl. 14.29: DV hefur birt athugasemd um málið.

Auglýsing

Frétt DV á laugardag um afmælisveislu sem enginn á að hafa mætt í vakti gríðarlega athygli. Daginn áður var þáttur á RÚV þar sem fjallað var um alvarleika eineltis meðal barna og ungmenna en þátturinn tengdist söfnunarátakinu Á allra vörum.

Í kjölfarið var haldinn fundur meðal foreldra í 10.bekk um einelti í árganginum. Á vef grunnskólans kemur fram að móðir umrædds nemanda hafi mætt á fundinn og skýrt sína hlið málsins. „Og ljóst er að þessi umfjöllun á ekki við nein rök að styðjast.“

Foreldrar, kennarar og stjórnendur Grunnskólans á Ísafirði segja í ályktun að frétt DV sé í besta falli byggð á misskilningi og flest í henni beinlínis rangt.

Nemandinn sem um er rætt hefur ekki orðið fyrir aðkasti í skólanum og samnemendur hans tóku sig ekki saman um að hafna afmælisboði frá honum. Þetta staðfestir móðir drengsins. Foreldrum, starfsfólki skólans og ekki síst nemendum var verulega brugðið við fréttaflutninginn og umræðuna sem skapaðist í kjölfarið.

Þá kemur fram að umræða um einelti sé mikilvæg í öllum samfélögum.

„Og öll erum við sammála um að við viljum stuðla að jákvæðum og uppbyggilegum samskiptum. Sú umræða sem birtist í fjölmiðlum um þetta tiltekna mál virðist eingöngu hafa þann tilgang að rífa niður. Hún er ekki byggð á traustum heimildum eða rannsóknarvinnu og leggur þar með neikvæðum samskiptum lið. Slíku viljum við ekki taka þátt í.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing