Friðrik Dór og Friðrik Þór leggja HeForShe átaki UN Women lið með því að koma fram í myndbandinu hér fyrir neðan.
Myndbandið er hluti af sex örmyndböndum sem gerð voru í tilefni af HeForShe-herferðinni þar sem búið er að para saman ólíka einstaklinga í skemmtilegum aðstæðum.
Sjá einnig: Tómasarnir þrír saman í myndbandi UN Women
Markmið herferðarinnar er að hvetja karlmenn til þátttöku í baráttunni fyrir kynjajafnrétti í heiminum.
Í tilkynningu frá UN Women kemur fram að samkvæmt rannsókn á vegum samtakanna verður jafnrétti náð árið 2095 ef við höldum áfram á sömu braut á sama hraða.
„Með stráka og karlmenn um borð er talið að jafnrétti muni nást helmingi fyrr. Barnahjónabönd eru alvarleg birtingarmynd ofbeldis gegn konum og stúlkum. Ef ekkert verður gert til að sporna við þessu að munu 39 þúsund stúlkur undir 18 ára aldri vera þvingaðar í hjónaband á hverjum einasta degi.
Það eru 27 stúlkur á hverri mínútu ganga í hjónaband á næstu 10 árum. Það tekur einungis eina kynslóð að afnema barnahjónabönd!“
Íslenskir karlmenn eru hvattir sérstaklega til þess að skrá sig sem mánaðarlegir styrktaraðilar á síðunni www.heforshe.is og hafa raunveruleg áhrif á líf milljónir kvenna og stúlkna í fátækustu löndum heims.
Herferðin stendur yfir dagana 11. – 26. Maí.