Friðrik Dór sendir frá sér hugljúfan smell: „Ég hef alltaf verið rosa páskastrákur“

Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór hefur sent frá sér lagið Fyrir fáeinum sumrum. Hlustaðu á lagið hér fyrir neðan.

Í dag er skírdagur og í skilaboðum til aðdáenda sinna á Facebook segist Friðrik alltaf hafa verið rosa páskastrákur. „Og þess vegna fannst mér tilvalið að gefa út eins og eitt lag svona rétt fyrir páska,“ segir hann.

Lagið er ekki beint nýtt og margir hafa komið að máli við mig í gegnum tíðina og óskað eftir því að ég gefi það út. Nú er komið að því!

Hlustaðu á lagið hér fyrir neðan með hjálp sænsku tónlistarveitunnar Spotify

Sjá einnig: Friðrik Dór kom aðdáanda númer eitt á óvart: Viðbrögðin voru stórkostleg

Auglýsing

læk

Instagram