Útvarpsmaðurinn Frosti Logason hefur fengið afhent málverk af sér og vini sínum, Hemma Gunn heitnum. Frosti birtir verkið á Facebook-síðu sinni í dag og minnist Hemma en rúm tvö ár eru frá því að hann lést.
„Núna eru liðin rúmlega tvö ár eru síðan að Hemmi vinur okkar kvaddi og maður er samt einhvernvegin ekki enn búinn að sætta sig alveg við það. Brotthvarf hans var bæði allt of ótímabært og óvænt,“ segir Frosti.
Hemmi kom alltaf fram við mig, eins og ég held flesta þá sem hann þekkti, af miklum kærleik og vináttu. Hann talaði við mig eins og fósturson sem væri í stöðugu uppeldi hjá meistaranum. Hrósaði mér þegar ég gerði vel og benti mér líka á það sem betur mátti gera. Hann var einstakur gleðigjafi.
Ýrr Valkyrja Baldursdóttir málaði verkið með airbrush-tækni og Frosti nefnir einnig að Gilbert Sigurðsson hafi átt heiðurinn á því að það hafi orðið til.