Frosti og Máni um Kassim Doumbia: Yrði algjör aumingja-hálfvitaskapur að senda hann í bann

Fagnaðarlæti FH-ingsins Kassim Doumbia eftir að hann skoraði jöfnunarmark á loka andartökum leiks við Breiðablik í gær hefur vakið mikla athygli.

Doumbia hljóp meðfram hliðarlínunni og endaði á að öskra „fuck off!“ í myndavél Stöðvar 2 sport, sem sýndi leikinn í beinni útsendingu. Einhverjir voru ósáttur og á Vísi er því velt upp hvort hann fái leikbann fyrir munnsöfnuðinn.

Auglýsing

Hér má sjá myndband af atvikinu.

Frosti og Máni ræddu málið í útvarpsþættinum Harmageddon í morgun. Þeir veltu fyrir sér hvort KSÍ ætli að hlusta á þá sem telja að FH-ingurinn eigi skilið bann og sögðu spennandi að fylgjast með því.

„Þetta yrði mesti aumingja-hálfvitaskapur að hlusta á það sem menn segja um að Doumbia eigi að fara í bann fyrir að segja fokk off,“ sagði Máni, ómyrkur í máli.

Félagarnir bentu á að þúsundir fylgdust með hljómsveitinni Wu Tang-Clan í Laugardalnum í gær og þar hafi ekki lítið verið blótað og enginn kvartað, þrátt fyrir að börn hafi verið á svæðinu.

„Við búum ekki í algjöru fávitasamfélagi og ég vona að fólk hugsi um það,“ sagði Máni.

Hér má hlusta á þá félaga ræða málið.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing