Útvarpsmaðurinn Frosti Logason svarar í bakþankapistli í Fréttablaðinu í dag hugleiðingum séra Bjarna Karlssonar sem segir sömu kenndir að verki sem fá menn til að horfa á klám og svo bardagaíþróttir.
Bjarni sagði í pistli í Fréttablaðinu í gær að eftir að hafa horft á allmarga UFC-bardaga þyki honum fegurðinni fórnað fyrir kappið.
Sjá einnig: Séra Bjarni útskýrir mál sitt: Fegurðinni fórnað fyrir kappið í UFC
„Sem mótvægi við þessi slæmu áhrif nefnir presturinn svo til sögunnar séra Friðrik nokkurn barnavin. Prestar hafa jú löngum sótt stíft í að starfa með börnum,“ segir Frosti.
Friðrik vann sér það helst til frægðar að stofna félög þar sem drengir hlupu um á stuttbuxum. Stóð hann þá á hliðarlínunni og lagði áherslu á að kappið bæri fegurðina ekki ofurliði. Drengir séra Friðriks skyldu verða góðir drengir og hermenn Guðs.
Frosti segir að þetta sé auðvitað ósköp fallegt.
„Ég held hins vegar að MMA og UFC eigi miklu meira erindi við okkar yngstu drengi í dag heldur en KFUM og KFUK.“