Frumleg bassaábreiða frá Agent Fresco

Myndband sem sýnir ansi hressandi viðtal við hljómsveitina Tríkot baksviðs á Þjóðhátíð í Eyjum vakti talsverða athygli fyrir nokkrum árum. Spyrillinn er einhver hressasti maður landsins enda eflaust búinn að tæma nokkrar dósir áður en viðtalið hófst.

Vignir Rafn Hilmarsson, bassaleikari Agent Fresco, birti á dögunum fyrstu bassaábreiðuna sína í tilefni af því að Agent Fresco fékk 20 þúsundasta lækið á Facebook. Í ábreiðunni fylgir hann hressa spyrlinum eftir og útkoman er ansi skemmtileg.

Auglýsing

Fyrst, upprunalega myndbandið:

Og svo, bassaábreiða Vignis:

Agent Fresco vinnur að breiðskífu þessa dagana en þau sem geta ekki beðið eftir að heyra í hljómsveitinni geta mætt á tónleika á Húrra! á laugardaginn.

Fylgdu Nútímanum á Facebook og þú missir ekki af einni einustu frétt.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing