Fundu illa farið lík og brak af skútu í fjöru við Grindavík, Joseph Le Goff hugsanlega fundinn

Um níuleytið í gærmorgun fundust líkamsleifar í fjörunni við Selatanga austan við Grindavík sem og brak af skútu. Þetta staðfestir fulltrúi lögreglunnar í Reykjanesbæ.

Líkur eru á að þar sé fundinn hinn 63 ára gamli Joseph Le Goff, sem lagði af stað frá Portúgal til Azoreyja, þann 7. júlí síðastliðinn. Áætlað var að siglingin tæki rúma viku en ekkert hefur spurst til Josephs síðan.

Þetta kemur fram á vef DV. 

Samkvæmt heimildum DV var líkið illa farið, en fyrst fundu björgunarsveitarmenn útlim af manni í fjörunni . Skammt frá fannst síðan brak úr skútu.

Bogi Adolfsson, formaður Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar, staðfestir í samtali við DV að Landhelgisgæslan hafi óskað eftir aðstoð sveitarinnar í gærmorgun til að ganga fjörur í leit að braki úr skútunni. Hópur björgunarsveitarmanna fann brak úr skútunni og lík í fjöruborðinu við Selatanga eftir korters göngu.

Þegar mest var voru 30 björgunarsveitarmenn á vettvangi sem og fulltrúar Landhelgisgæslunnar og lögreglunnar á Suðurnesjunum.

Auglýsing

læk

Instagram