Fyrrverandi forseti Bandaríkjanna segir geimverur raunverulegar: Obama leysir frá skjóðunni

Fyrrverandi forseti Bandaríkjanna segir geimverur vera raunverulegar – þó hann hafi sjálfur aldrei séð neinar. Ummælin féllu í viðtali þar sem hann var spurður beint hvort geimverur væru til.

„Þær eru raunverulegar, en ég hef ekki séð þær,“ sagði hann í samtali við Brian Tyler Cohen.

Hafnar samsæriskenningum um Area 51

Í sama viðtali hafnaði hann fullyrðingum um að bandarísk stjórnvöld feli geimverur á herstöðinni Area 51 í Nevada. Hann sagði engar leynilegar neðanjarðarstöðvar geyma geimverur og gaf í skyn að slíkt hefði vart farið framhjá forseta Bandaríkjanna sjálfum.

Auglýsing

Area 51 hefur um árabil verið miðpunktur sögusagna um fljúgandi furðuhluti og leyniverkefni stjórnvalda. Bandarísk stjórnvöld hafa viðurkennt tilvist stöðvarinnar en segja hana notaða til prófana á háþróuðum herflugvélum.

„Hvar eru geimverurnar?“

Spurður hvaða spurningu hann hefði helst viljað fá svar við þegar hann tók við embætti forseta svaraði hann léttur í bragði:

„Hvar eru geimverurnar?“

Michelle myndi skilja við mig

Í viðtalinu útilokaði hann jafnframt endurkomu í stjórnmál og sagði í hálfkæringi að eiginkona hans myndi skilja við sig ef hann reyndi að bjóða sig fram aftur.

Hann sagði þau nú einbeita sér að starfi sínu í gegnum Obama-stofnunina með það markmið að efla ungt fólk og næstu kynslóð leiðtoga.

Gagnrýnir pólitískan tón

Fyrrverandi forsetinn vék einnig að stöðu bandarískra stjórnmála og gagnrýndi harðan og niðrandi tón í opinberri umræðu í kjölfar umdeilds myndbands sem deilt var á samfélagsmiðlum og síðar fjarlægt.

Hann sagði meirihluta Bandaríkjamanna telja slíka framgöngu „djúpstætt áhyggjuefni“ og lýsti umræðunni sem ákveðinni „trúðasýningu“ á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing