Fyrsti staðurinn á Íslandi sem sérhæfir sig í að para mat og bjór

Bjórgarðurinn opnar á Fosshótel Reykjavík við Höfðatorg í júní. Í umfjöllun um staðinn á vef veitingageirans kemur fram að hann taki 120 manns í sæti en boðið verður upp á mikið úrval af bjór og mat undir áhrifum götumenningar í New York.

Rekstrarstjórinn Loftur H. Loftsson segir í samtali við Fréttatímann að staðurinn verði sá fyrsti á Íslandi sem sérhæfir sig í að para mat og bjór. „Enda teljum við að bjór upphefji allar máltíðir,“ segir hann.

Auglýsing

Bjórmenningin á Íslandi hefur verið í mikilli sókn og í Bjórgarðinum verður meðal annars boðið upp á bjór frá brugghúsnum Borg og Brewdog, sem allir bjórunnendur ættu að þekkja.

„Ég legg mikla áherslu á þjálfun starfsfólks og við verðum með bjórráðgjafa á staðnum. Þannig að ef þú ert með spurningar um bjórinn eða vantar ráðleggingar við matarpörun geturðu leitað til fagmanns,“ segir Loftur í Fréttatímanum.

Það getur nefnilega verið gott að fá hjálp við að finna þinn bjórstíl. Þú ert kannski alltaf að heyra um IPA-bjór og heldur að það sé besti bjórinn en kannski viltu helst af öllu villigerjaðan belgískan bjór.

Loks verða pylsur frá Pylsumeistaranum og grænmetispylsurnar Bulsur einnig á boðstólnm ásamt rifjum, fiski og frönskum.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing