Gagnrýnir harðlega andstöðu við karlaathvarf og sakar fjölmiðla og hagsmunahópa um skítkast

Huginn Þór Grétarsson birti færslu á Facebook þar sem hann gagnrýnir það sem hann kallar skipulagða andstöðu hagsmunahópa gegn karlaathvarfi.

Hann segir hópana hafa fengið RÚV og Vísi í lið með sér til að ráðast á sig og fleiri sem tengjast málinu í kjölfar þess að Inga Sæland ákvað að veita Samtökum um karlaathvarf styrk.

Auglýsing

Huginn er með færslu sinni að vísa til umfjöllunar um styrkveitingu félags- og húsnæðismálaráðherra til Samtaka um karlaathvarf, sem var veitt þvert á ráðleggingar matsnefndar.

Að hans mati snúist málið um að matsnefnd og tengdir aðilar vilji enn eitt árið beina opinberu fé nær alfarið til kvennahreyfinga og bregðist harkalega við þegar karlaathvarf fær, að hans sögn, smávægilegan hluta af því fjármagni sem Kvennaathvarf nýtur.

Segir fjölmiðla taka augljósa afstöðu í málinu

Huginn segir fjölmiðla ekki hafa haft samband við sig eða aðra sem tengjast karlaathvarfinu og að tilgangur umfjöllunarinnar sé ekki að upplýsa almenning heldur að koma höggi á þá sem styðja málið.

Hann gagnrýnir sérstaklega RÚV og segir ríkisfjölmiðilinn vera orðinn að áróðursmiðli.

Hann bendir á að um sé að ræða um það bil 1,5 prósent af því fé sem Kvennaathvarf fær og spyr hvers vegna fjölmiðlar hafi aldrei velt fyrir sér af hverju staðið sé gegn því að karlar njóti sambærilegra úrræða og konur þegar kemur að heimilisofbeldi.

Fullyrðir um hagsmunaárekstra

Í færslunni fer Huginn einnig yfir kvartanir sem hann segir að hafi verið lagðar fram vegna meintra hagsmunaárekstra innan stjórnkerfisins.

Hann nefnir starfsmann félagsmálaráðuneytisins sem sitji í stjórn Bjarkarhlíðar ásamt fulltrúum frá Kvennaathvarfi og Kvennaráðgjöf, á sama tíma og hún komi að úthlutun styrkja til sömu samtaka.

Hann segir að Samtökum um karlaathvarf hafi verið meinað að fá upplýsingar sem óskað hafi verið eftir og að þetta sé „meira lagi óheppilegt“.

Vísar í gagnrýni á ferlið

Huginn vísar jafnframt í formlegt erindi þar sem bent er á að ómögulegt sé að tryggja hlutleysi þegar aðili sem situr í stjórn hagsmunasamtaka annist jafnframt málið innan ráðuneytisins.

Þar er lagt til að óháður aðili taki við málinu og sjái um samskipti við samtökin.

 

 

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing