Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, átti hugmyndina að því að ráða Lars Lagerbäck sem þjálfara íslenska landsliðsins í fótbolta. Þetta kom fram í viðtali við Geir í Akraborginni á X977 í gær. Viðtalið má heyra hér fyrir neðan.
Nútíminn greindi frá því í gær að þrír menn hefðu stigið fram og bent á þátt sinn í ráðningunni á Lars, Sigurður Ragnar Eyjólfsson, Henry Birgir Gunnarsson og Kolbeinn Tumi Daðason.
Geir sagði í viðtalinu í Akraborginni að hann hafi kynnst Lars í gegnum samskipti knattspyrnusambandsins við Svía.
„Það kom mér á óvart að hann skildi hætta með Svíana og þá kom þessi hugmynd upp í kollinn að þarna gæti kannski verið möguleiki ef það væri innan þess fjárhagsramma sem við gætum teygt okkur í,“ sagði Geir í Akraborginni.
Hjörtur Hjartarson, stjórnandi þáttarins spurði hann svo hreint út hvort hugmyndin hafi kviknað hjá honum.
„Já, ég meina ég þekkti manninn og vissi eftir hverju var að sækja,“ sagði Geir.
Taktu prófið! Hversu vel þekkirðu Lars Lagerbäck?
Sigurður Ragnar, fyrrverandi landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu og fræðslustjóri Knattspyrnusambands Íslands, sagðist í færslu á Facebook-síðu sinni hafa sannfært stjórnendur KSÍ um að Lars Lagerbäck ætti að taka við þjálfun íslenska karlalandsliðsins fyrir fjórum árum síðan.
Íþróttafréttamaðurinn Henry Birgir benti á dögunum á viðtal sem hann tók við Lagerbäck í september árið 2011 þar sem sá sænski sagðist vera til í viðræður við KSÍ.
Kolbeinn Tumi, fréttastjóri Vísis og fyrrverandi íþróttafréttamaður á Fréttablaðinu, benti á viðtal sem hann tók við Lagerbäck fyrir vefinn Sammarinn.com í janúar árið 2010. Viðtalinu lýkur á því að Lagerbäck er spurður hvort það kæmi til greina að taka við þjálfun íslenska landsliðsins. „Ekki spurning!“ svarar hann.
Viðtalið við Geir má heyra hér fyrir neðan.