Gekk berserksgang í Breiðholti – beraði sig fyrir framan nágranna

Maður í annarlegu ástandi vegna áfengisneyslu var handtekinn í Breiðholti í gærkvöldi eða nótt. Hann mun hafa valdið eignaspjöllum og síðan berað sig fyrir framan nágranna sína.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Í sama hverfi var einnig brotist inn á tannlæknastofu og maður handtekinn fyrir að ráðast á leigubílstjóra.

Auglýsing

Í dagbókinni segir jafnframt að karl og kona hafi verið handtekin í Hafnarfirði vegna líkamsárásar og séu nú vistuð í fangaklefa.

Eldur kviknaði í þvottahúsi, eða fatahreinsun, í miðbæ Reykjavíkur. Eldurinn reyndist lítill og tókst að slökkva hann fljótt.

Í miðbænum var þremur mönnum vísað úr bílastæðahúsi eftir að þeir höfðu valdið ónæði og angrað fólk.

Tveir menn voru einnig til vandræða á veitingastað í hverfi 108. Þegar lögregla fletti þeim upp í kerfum sínum kom í ljós að annar þeirra var eftirlýstur og var hann því handtekinn.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing