Gengu laus á Hafravatnsvegi

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst  tilkynning vegna hrossa sem gengu laus á Hafravatnsvegi. Ekki kemur fram hvernig málið var leyst en nóttin hjá lögreglu var að öðru leyti hin rólegasta.

Lögregla var þó kölluð út í gærkvöldi vegna reiðhjólaslyss. Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvar á höfuðborgarsvæðinu slysið átti sér stað en var um að ræða ungan dreng sem datt af hjóli. Hlaut hann minniháttar áverka og var fluttur með sjúkrabíl til aðhlynningar á bráðadeild.

Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna.

Auglýsing

læk

Instagram