Gerði lokaverkefni um Fóstbræður: „Bestu gamanþættir allra tíma“

Atli Sigursveinsson er að útskrifast af listnámsbraut Borgarholtsskóla. Hann gerði lokaverkefni um Fóstbræður og fékk fyrir það 10 en sýning á verkunum fer fram í menningarhúsinu í Spönginni.

Verkin, sem hann kallar „Ég elska Fóstbræður“ má sjá hér fyrir neðan.

Auglýsing

Atli segir í samtali við Nútímann að Fóstbræður hafi verið stór hluti af æsku sinni og segir þættina bestu grínþætti allra tíma.

Mig hefur lengi langað að sýna Fóstbræðrum einhverskonar þakklætisvott fyrir allt grínið sem hefur mótað mig sem einstakling. og þegar það kom að því að velja viðfangsefni fyrir lokaverkefnið fannst mér tilvalið að henda í eitt stórt „takk“.

Á meðal atriða sem hann valdi voru Líffæragjafinn, eða Donator, og hinir víðfrægu, en óskiljanlegu, bílastæðaverðir.

„Þegar kom að því að velja atriði úr þáttunum var ég mjög spenntur en því fylgdi einnig gífurlegur valkvíði,“ segir Atli.

„Ég horfði á allar seríurnar og skráði niður allt það sem gæti komið til greina sem kvikmyndaplaköt. Eftir langa leit ákvað ég að velja þau atriði sem ég hélt að væri skemmtilegast að teikna.“

bilastv

Spurður hvort hann sé búinn að bjóða Fóstbræðrunum á sýninguna segist hann ekki verið búinn að því.

„En ætli það sé þá ekki tilvalið að bjóða þeim núna? Það væri mér sannur heiður að fá þau í heimsókn.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing