Gestir Menningarnætur til fyrirmyndar – en nokkur útköll vegna óláta

Gestir Menningarnætur í Reykjavík eru sagðir hafa verið til fyrirmyndar að þessu sinni. Að sögn Árna Friðleifssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns á umferðardeild, voru hátíðarhöldin í miðborginni í gær kvöld vandræðaminni en fyrir ári. Þetta kemur fram í umfjöllun RÚV.

Nóttin „nokkuð hefðbundin“

Samkvæmt upplýsingum Neyðarlínunnar var aðfaranótt sunnudags „nokkuð hefðbundin“ með fáeinum útköllum vegna veikinda, smávægilegra óhappa og árekstra milli gesta. Lögreglan þurfti að hafa afskipti af fólki í annarlegu ástandi sem veittist að vegfarendum.

Auglýsing

Ungmenni, ölvað og réttindalaust, var stöðvað við akstur í úthverfi – en málið var leyst með aðkomu foreldra þess, að því er RÚV greinir frá.

Rúða brotin í Þjóðleikhúsinu

Í morgunskeyti lögreglunnar kom fram að rúða hafi verið brotin í húsi í miðborginni eftir að járnröri var kastað inn. RÚV vitnar til fréttar Vísis þar sem fram kemur að um hafi verið að ræða rúðu í Þjóðleikhúsinu. Ekki liggur fyrir hvort einhver hafi slasast vegna glerbrota.

Þjófnaður og líkamsárás til rannsóknar

Lögreglan rannsakar einnig þjófnað á veitingastað í miðborginni og líkamsárás í úthverfi. Sá sem fyrir varð hlaut minni háttar áverka. Sjö einstaklingar gistu fangageymslur í nótt.

Minning um Bryndísi Klöru

Að loknu Tónaflóði Rásar 2 var Menningarnótt slitið með einnar mínútu þögn til minningar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur, sem lést eftir hnífstunguárás á Menningarnótt í fyrra. Flugeldasýningin var einnig tileinkuð minningu hennar og allra ungmenna sem orðið hafa fyrir ofbeldi.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing