Gísli Einars datt á rassinn í beinni útsendingu og bændurnir trylltust úr hlátri

Sjónvarpsmaðurinn Gísli Einarsson datt á rassinn í beinni útsendingu stuttu eftir miðnætti í nótt. Verið var að sýna frá sauðburði í Syðri Hofdölum í Skagafirði. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Sjá einnig: RÚV sýnir sauðburð í beinni útsendingu í heilan sólarhring

Auglýsing

Gísli var í þann mund að taka viðtal við hjónin og bændurnar á Syðri Hofdölum, þau Ingibjörgu Klöru Helgadóttur og Atla Má Traustason. Spýtan sem Gísli sat á var ekki traustari en svo að hún brotnaði og allir trylltust úr hlátri.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing