Gísli Pálmi klippti hár Sóleyjar: „Þetta er illað!“

Rapparinn Gísli Pálmi er ansi lunkinn með skærin ef marka má plötusnúðinn Sóleyju Kristrjánsdóttur. Hann klippti á henni hárið í gær og var útkomin mjög flott að mati Sóleyjar en þau sýndu bæði frá klippingunni á Instagram-síðum sínum.

„Þetta er illað,“ sagði Sóley um lokaútkomuna en þetta var í fyrsta skipti sem hún fór í klippingu eftir að hár hennar byrjaði að vaxa aftur eftir krabbameinsmeðferð.

Bæði Sóley og Gísli Pálmi sýndu frá klippingunni í Instagram Stories

„Þetta er svo geggjað!“ skrifaði Sóley við færsluna á Instagram en nú er spurning hvort rapparinn fái ekki bara samning á hárgreiðslustofu

Auglýsing

læk

Instagram