Golfarinn Kári Örn Hinriksson fær ekki að skrá sig til leiks í þriðja móti Eimskipsmótaraðarinnar í golfi sem hefst á föstudaginn á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Ástæðan er sú að hann þarf að nota golfbíl þar sem krabbameinslyf hafa farið illa með mjaðmir hans.
Kári Örn segir frá þessu á Facebook-síðu sinni. Hann segist hafa verið spenntur þegar hann sá að hann gat skráð sig til leiks í mótinu sem verður á heimavelli hans í Mosfellsbæ.
Veðurspáin var nógu góð fyrir mig til þess að spila án þess að krókna, ég var á stað í lyfjakúrnum mínum sem leyfði mér að spila golf og ég hafði verið duglegur að æfa mig í sumar.
Golfsamband Íslands neitaði að leyfa honum að taka þátt á þeim grundvelli að ef hann fengi bíl myndi það opna fyrir að fleiri myndu biðja um bíl síðar meir.
Kári hefur glímt við krabbamein síðustu ár og fjórar lyfjameðferðir hafa eyðilagt mjaðmabeinið sem gerir mjög sársaukafullt fyrir hann að ganga langt.
Hann er með 7.8 í forgjöf og segir ólíklegt að hann myndi berjast um sigur á mótinu. Mjög góð niðurstaða væri að komast í gegnum niðurskurðinn.
„Þeir vildu þó leyfa mér að spila með í mótinu, en ekki sem viðurkenndur þátttakandi sem gæti unnið til verðlauna eða unnið sér inn stig,“ segir hann.
„Ég myndi bókstaflega vera eins og fylgdarmaður þeirra sem ég spila með í holli, skorið mitt gildir ekki og ég hef engu að keppa að.“
Kári segist vera miður sín, reiður og sár enda hefur hann ekki getað spilað með á mótunum vegna veikinda í mörg ár.
„Og akkúrat þegar að ég hef heilsu og getu til þess að taka þátt bannar GSÍ mér það vegna fáránlegrar stefnu sem er meira að segja útdauð á sjálfri PGA-mótaröðinni eftir frægan sigur Casey Martins gegn henni fyrir hæstarétti Bandaríkjanna,“ segir hann.
„Að taka þátt í svona móti aftur meðal þeirra bestu er mjög merkilegt fyrir mig. Það væru sönn lífsgæði að fá að spila við nokkra bestu kylfinga landsins eftir það sem ég hef þurft að ganga í gegn um og þær hindarnir sem ég hef þurft að fara yfir til þess einfaldlega að fá þann séns aftur.“
Kári hyggst kanna rétt sinn á næstu dögum og fara með málið fyrir dómstóla ef grundvöllur er fyrir því.
„Svona óréttlæti og mismunun á ekki að líðast neinstaðar — sérstaklega ekki gegn fólki sem hefur vaðið eld og brennistein til þess, meðal annars, að komast á golfvöllinn aftur.“
Smelltu hér til að lesa pistil Kára.