Verðlaun verða veitt fyrir besta búninginn á götuhátíð sem bandarískir kvikmyndagerðarmenn slá upp í miðbæ Reykjavíkur í dag. Ekki er krafist þess að fólk mæti í búningi, að sögn Alice Mathias framleiðanda.
Eins og Nútíminn greindi frá í vikunni þá verður sérstakri Al Capone-hátíð slegið upp í miðbæ Reykjavíkur í dag, sumardaginn fyrsta. Hátíðin verður tökustaður grínþáttar með grínistunum Bill Hader, Fred Armisen og Seth Meyers í hlutverkum.
Fólk er einnig hvatt til að koma með heimagerð skilti sem mega vísa í Al Capone, Chicago, Godfather-kvikmyndirnar eða fjórða áratuginn.
Sjá einnig: Slá upp Al Capone-hátíð í Reykjavík
Nútíminn hefur fjallað um hóp bandarískra kvikmyndagerðarmanna sem er staddur hér á landi að taka upp grínþátt.
Fólk er hvatt til að mæta á tökustaðinn en hátíðin fagnar öllu sem tengist glæpaforingjanum Al Capone en hver og einn getur túlkað það nokkurn veginn eins og hann vill. Fjórði áratugurinn verður áberandi ásamt djasstónlist, gömlum bílum, löggum, bófum og öðru sem tengist borginni Chicago á þessum tíma.
Þau sem hafa áhuga á að taka þátt geta mætt fyrir utan hótelið Kvosin, Kirkjutorgi 4. Rétt hjá Alþingishúsinu og Dómirkjunni klukkan 10.30 í dag, sumardaginn fyrsta. Nánari upplýsingar verða í þessum hópi á Facebook.
Bandarískir og íslenskir leikarar verða á svæðinu. Eins og Nútíminn greindi frá í gær eru Ari Eldjárn, Saga Garðarsdóttir, Siggi Sigurjóns, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Nína Dögg Filippusdóttir og Þorsteinn Guðmundsson komin með hlutverk í þáttunum.