Rokktónleikar GCD með Bubba Morthens og Pálma Gunnarssyni verða haldnir til heiðurs Rúnari Júlíussyni í Hörpu í september. Aðrir meðlimir GCD verða ekki með þar sem ekki tókst að semja um laun. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Rúnar Júlíusson og Bubbi Morthens stofnuðu GCD árið 1991. Aðrir meðlimir í hljómsveitinni voru Gunnlaugur Briem og Bergþór Morthens.
Gunnlaugur segir í Fréttablaðinu að launamálin hafi ekki gengið upp og því leiki aðrir hljóðfæraleikarar undir á tónleikunum. „Þetta sigldi í strand.“
Þessir tónleikar eru bara eitthvað annað. Bubbi ásamt góðum hljóðfæraleikurum að leika lög GCD en þetta er ekki GCD frekar en Rolling Stones án Keith og Charlie.
Hann segist þó í Fréttablaðinu ekki vilja fara í stríð út af þessu.
„En [mér] finnst eðlilegt að fólk viti hver mergur málsins er, hvers vegna gamla GCD verður ekki á þessum tónleikum.“