Gunnar Hansson sleginn tíu sinnum fyrir atriði sem var svo ekki notað í Bakk

Gunnar Hansson var sleginn tíu sinnum utan undir fyrir atriði í gamanmyndinni Bakk sem var svo ekki notað. Myndband sem sýnir átta af þessum glæsilegu kinnhestum, sem voru „ekkert feik“ að hans sögn, má sjá hér fyrir neðan.

Bakk var frumsýnd í kvikmyndahúsum á dögunum og hefur fengið frábæra dóma. Myndin fékk fimm stjörnur í Fréttablaðinu, fjórar í Morgunblaðinu, fjórar á Rás 2 og sex af fimm mögulegum á Xinu.

Auglýsing

Gunnar leikstýrir myndinni sjálfur ásamt Davíð Óskari Ólafssyni. Hann segir að fyrir eina tökuna hafi þeir beðið þær Ágústu Evu og Nínu Dögg að „gefa vel í“ sem þær gerðu.

„Mér sortnaði fyrir augum og þurfti á öllu mínu að halda að halda jafnvægi og detta ekki,“ segir Gunnar.

Okkur fannst sú taka heppnast rosa vel — nema hvað að myndavélin stóð eitthvað á sér og þetta var eina takan í allri bíómyndinni sem skemmdist.

Gunnar segir að þetta hafi ekki verið auðvelt fyrir Ágústu og Nínu.

„Þær voru alveg í mínus greyin að þurfa að slá mig aftur og aftur og áttu erfitt með að fara alltaf í fleiri tökur, en þær voru auðvitað bara að gera það sem við báðum þær um,“ segir hann.

„En ég viðurkenni að það var mjög erfitt að fara í nýjar tökur og bíða eftir höggunum án þess að sýna að ég vissi að þau væru að koma og bregðast of fljótt við þeim. Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera kvikmyndaleikari, ekki bara kampavín og kavíar.“

Til að slútta þessu höfum við hér átta kinnhesta á aðeins fjórum sekúndum.

Bakk er sýnd í Smárabíói, Laugarásbíói, Háskólabíói og Borgarbíói á Akureyri. Miðar fást hér.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing