Bardagakappinn Gunnar Nelson sendi fjölskyldu veika bandaríska drengsins, sem var nefndur í höfuðið á honum, bréf og áritaðan bol á dögunum.
Hin bandaríska Stephanie Ann Kenealy og eiginmaður hennar nefndu son sinni í höfuðið á Gunnari. Drengurinn fæddist 25. júlí og fékk nafnið Gunnar James Kenealy.
Fjölskyldan birti mynd af varningnum á Facebook og sendi Gunnari kveðju.
Takk fyrir að senda okkur þetta alla leið frá Íslandi! við erum mjög þakklát og þetta var mjög upplífgandi fyrir fjölskyldu okkar. Við hengjum þetta upp með stolti. Guð blessi ykkur og takk fyrir!
Gunnar sendi honum einnig bréf: „Til Gunnars litla. Góðan bata, vinur. Bestu kveðjur frá Íslandi.“
Stephanie skildi eftir skilaboð á vegg Gunnars á Facebook á sínum tíma þar sem hún sagði frá raunum eldri sonar síns og þeim nýfædda, sem er glímir við veikindi.
„Hann er bardagamaður og hefur ekki hugmynd um það. Hann er ekki ennþá kominn heim af spítalanum,“ sagði hún.
„Hann er mjög veikur og læknarnir hafa ekki fundið hvað er að honum. Ég ákvað að birta þetta eftir síðasta UFC-bardagann þinn. Til hamingju með bardagann! Að berjast er í eðli okkar og Gunnar er nafn bardagamanns. Hann mun berjast!“