Gunnar upp um fjögur sæti á styrkleikalista UFC

Gunnar Nelson fer upp um fjögur sæti í veltivigtarflokknum á nýjum styrkleikalista UFC sem var birtur á vef bardagasambandsins rétt í þessu. Gunnar var í 15. sæti listans fyrir bardagann á laugardag en er núna í því 11.

Auglýsing

Bardagaköppunum er raðað niður eftir styrkleika á eftir ríkjandi meistara, sem er Robbie Lawler í veltivigtarflokknum.

Sjá einnig: Gunnar Nelson var týpískur Gunnar Nelson á blaðamannafundinum eftir bardagann

Conor McGregor, æfingafélagi og vinur Gunnars, fer upp í 1. sæti á fjaðurvigtarlistanum.

Þar er Jose Aldo ríkjandi meistari en til stóð að þeir myndu mætast á bardagakvöldinu á laugardag. Hann dró sig hins vegar út vegna meiðsla og McGregor mætti því Chad Mendes.

Conor McGregor kemst einnig í 14. sæti á hinn svokallaða „pound for pound“-lista sem raðar mönnum eftir styrkleika óháð þyngdarflokkum.

Gunnar Nelson þénaði 58 þúsund dali fyrir bardagann á laugardaginn. Það eru um átta milljónir íslenskar krónur. Andstæðingur Gunnars, Bandaríkjamaðurinn Brandon Thatch, þénaði 22 þúsund dali.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing