Gylfi Ægis lýsir yfir sigri: „Við höfum unnið stórsigur á harðlínuperrum hinsegin fólks“

Gylfi Ægisson ávarpar stuðningsfólk sitt á Facebook-síðu sinni og lýsir yfir „stórsigri á harðlínuperrum hinsegin fólks“. Tilefnið er frétt gærdagsins um að samtökunum BDSM Ísland hafi verið meinuð þátttaka í Gleðigöngunni í fyrra og að þau hafi ákveðið að sækjast ekki eftir því að fá að taka þátt í ár.

Sjá einnig: BDSM á Íslandi meinaður aðgangur að Gleðigöngunni og verður ekki heldur með í ár

Auglýsing

Gylfi kærði Samtökunum 78 árið 2013 vegna „klámfenginna orða sem áttu að hafa borist í eyru lítilla barna á Gay Pride 2013“. Hinsegin dagar í Reykjavík eru sjálfstæð sjálfboðaliðasamtök og því ekki á vegum Samtakanna 78.

„Ég þakka ykkur fyrir stuðninginn þessi tvö ár sem hommastríðið hefur staðið yfir,“ segir Gylfi og bætir við að forsprakkar Hinsegin daga hafi tekið undir málflutning hans.

[…] Að þetta hafi verið klámvæddar göngur í gegnum árin og þar með viðurkenna þeir að þessar gleðigöngur hafi brotið barnaverndarlögin og líka blygðunarlögin.

Gylfi vísar í barnaverndarlög og lög gegn blygðunarbrotum, máli sínu til stuðnings segir Hinsegin daga hafa hent leðurhommunum úr göngunni, ásamt „keðjuþrælunum“ og „núna BDSM“.

Sjá einnig: Tölvuþrjótar hakka Facebook-síðu Gylfa Ægissonar

„Og eru að reyna að klóra yfir skítinn en það verður samt skítalykt af málinu,“ segir hann.

„Ég vona samt að gangan verði öðruvísi í ár en árin á undan og endurtek þakklæti mitt til stuðningsfólks Gylfa Ægis. Sigurinn er okkar.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing