Sjónvarpsþátturinn Hæpið snýr aftur á dagskrá RÚV í haust. Katrín Ásmundsdóttir og Unnsteinn Manel Stefánsson snúa aftur sem stjórnendur þáttarins sem vakti mikla athygli síðasta vetur og var valinn lífsstílsþáttur ársins á Eddunni.
Sjá einnig: Óska eftir krassandi reynslusögum af Tinder
Hæpið fjallar um málefni ungs fólks á hispurslausan hátt og óskaði eftir fólki og eldimu efni til að fjalla um á Twitter rétt í þessu.
erum að leita að eldfimum umræðuefnum og fólki fyrir næstu seríu af #hæpið endilega sendið okkur línu hér á eða á haepid(at)gmail
-uni— Hæpið (@haepid) July 20, 2015
Unnsteinn segir í samtali við Nútímann að vinna að næstu þáttaröð sé hafin.
Já, við erum sem sagt bara að skrifa handritið núna en það er ekkert fast í ennþá hver umfjöllunarefnin eru — nema einn þáttur um #-byltingarnar.