Hákarl er í alvöru uppáhaldskjöt Gunnars Nelson

Bardagakappinn Gunnar Nelson er í viðtali á rússnesku MMA-síðunni Combat Bear. Tilefnið er bardagi Gunnars við Bandaríkjamanninn Rick Story í Svíþjóð í október og talar hann meðal annars um karate, félaga sinn Conor McGregor og lífið á Íslandi.

Fátt kemur á óvart í viðtalinu fyrir utan þegar blaðamaðurinn spyr að hinni hefðbundnu hákarlaspurningu, ásamt því að fullyrða að hákarl sé mjög vinsæll á Íslandi. Gunnar svarar:

Hákarl er uppáhaldskjötið mitt og það kemur sér vel fyrir styrkinn. Ég skil ekki af hverju það kemur fólki á óvart en öllum sem ég gef að smakka finnst það gott.

Smelltu hér til að lesa viðtalið.

Auglýsing

læk

Instagram